• 1. Object
  • 2. Object

2.7° - SSV 1.9 m/s

585 0050

Book Tee Times

Tyrft við veg á 2. braut

Vallarstarfmenn GO hófu í gær vinnu við að tyrfa svæði við veginn sem liggur í gegnum 2. braut á Urriðavelli. Skemmdir urðu á svæðinu í vetur vegna efnisflutninga úr Urriðaholti. Vel hefur gengið að tyrfa svæðið og verður svo farið í það að lagfæra fleiri svæði í kringum veginn á næstu dögum og vikum. Sjá má mikinn mun á svæðinu sem verður vonandi orðið fullgróið síðar í sumar.

Við vonum að kylfingar sýni þessum framkvæmdum þolinmæði og sýni aðgát þegar 2. braut er leikin. Áfram verður blámerkt svæði, grund í aðgerð, á nýlögðu torfi.

Tyrft 2. braut2 2015

Ásýnd 2. brautar mun lagast verulega eftir að tyrft hefur yfir skemmdir við veg.

< Fleiri fréttir