• 1. Object
  • 2. Object

2.7° - SSV 1.9 m/s

585 0050

Book Tee Times

Urriðavöllur opnar á laugardag með opnunarmóti

– Skráning í opnunarmótið hefst kl. 13:00 í dag

Urriðavöllur mun opna laugardaginn 16. maí næstkomandi með glæsilegu opnunarmóti. Vallarstarfsmenn hafa unnið baki brotnu síðustu daga við að koma vellinum í leikhæft ásigkomulag og er ljóst að sú mikla vinna er að skila sér. Vetrargolfi á Urriðavelli lýkur á fimmtudag og verður völlurinn lokaður allri umferð föstudaginn 15. maí vegna vinnu vallarstarfsmanna.

Opnunarmót Urriðavallar verður haldið á laugardag og verður ræst út frá kl. 09:00 og fram til 16:00. Glæsileg verðlaun verða í boði og er mótsgjald 2.800 kr.

Skráning í mótið hefst kl. 13:00 í dag og eru félagsmenn hvattir til að vera röskir að skrá sig enda má búast við að rástímar fari hratt. Veðurspá á laugardag lofar góðu. Athygli er vakin á því að öll önnur um Urriðavöll áður en mótið hefst á laugardag er ekki í boði.

Skráning og frekari upplýsingar um mótið má finna hér.

< Fleiri fréttir