• 1. Object
  • 2. Object

1.4° - SSV 1.9 m/s

585 0050

Book Tee Times

Úrslit í karlaflokki á Örninn Golf heimslistamótinu

Tómas Eiríksson Hjaltested úr Golfklúbbi Reykjavíkur sigraði í karlaflokki á Örninn Golf heimslistamótinu sem kláraðist í dag við frekar erfiðar aðstæður á Urriðavelli í leifum af fellibylnum Larry. Tómas spilaði nokkuð gott golf í dag sérstaklega á seinni 9 holum vallarins þar sem hann lék á pari og samtals hringinn í dag á 79 höggum.

Samtals lék Tómas á 220 höggum og í öðru sæti varð Gunnlaugur Árni Sveinsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar á 225 höggum og í þriðja sæti hafnaði Aron Emil Gunnarsson frá Golfklúbbi Selfoss.

Örninn Golfverslun var styrktaraðili mótsins og hlutu vinningshafar gjafabréf í versluninni. Við þökkum keppendum fyrir þrautseigjuna að klára daginn í dag með okkur og hlökkum til að taka á móti ykkur síðar við vonandi betri aðstæður.

Aron Emil Gunnarsson, Tómas Eiríksson Hjaltested og Gunnlaugur Árni Sveinsson
Lokahollið að hefja leik á 10. braut á Örninn Golf heimslistamótinu
Export-55

< Fleiri fréttir