9.3° - A 6 m/s

585 0050

Book Tee Times

Úrslit í Opnunarmóti GO 2026

Opnunarmót GO var leikið við ágætis aðstæður og ef miðað er við þær veðurspár sem voru í gangi í aðdraganda mótsins þá slapp þetta heldur betur vel og einungis síðustu holl dagsins fengu einhverja rigningu að ráði á sig.

120 keppendur voru skráðir til leiks og spilað var á allar flatir vallarins sem var gleðiefni og kylfingur voru almennt ánægðir með daginn og þeir sem hingað hafa komið frá opnunardegi sögðu að völlurinn hefði aldeilis tekið framförum á þessum fáu dögum og greinilegt að rigningardropar undanfarna daga eru að gera gott. 

Úrslit mótsins er hér fyrir neðan, smá hreyfingar voru á sætum við uppgjör mótsins, í punktakeppni var keppandi sem hafnaði í 2. sæti að leika fyrsta hring til forgjafar og getur því ekki tekið verðlaun en sá var áður afrekskylfingur og á hraðri leið að fyrri forgjöf með árangri sínum í dag. 

MYNDASÍÐA GO – NOKKRAR OPNUNARMÓTSMYNDIR HÉR

Opnunarmót GO 2026 – ÚRSLIT

Kvennaflokkur.

Besta skor: Sólveig Guðmundsdóttir   82 högg – 25.000 kr inneign í golfbúðinni á Urriðavelli

Punktar
1. Anja Erla Pálsdóttir                       47 punktar – 25.000 kr inneign í golfbúðinni á Urriðavelli
2. Guðbjörg Elín Ragnarsdóttir     39 punktar – 20.000 kr inneign í golfbúðinni á Urriðavelli
3. Anna Sigríður Ásgeirsdóttir       39 punktar – 15.000 kr inneign í golfbúðinni á Urriðavelli

Karlaflokkur.

Besta skor: Þórður Möller   83 högg – 25.000 kr inneign í golfbúðinni á Urriðavelli

Punktar
1. Dofri Þórðarson        43 punktar – 25.000 kr inneign í golfbúðinni á Urriðavelli
2. Páll Þórir Pálsson     39 punktar – 20.000 kr inneign í golfbúðinni á Urriðavelli
3. Aron Snær Pálsson  37 punktar – 15.000 kr inneign í golfbúðinni á Urriðavelli

Lengsta teighögg kvenna:
3. braut: Anja Erla Pálsdóttir – 10.000 kr inneign í golfbúðinni á Urriðavelli

Lengsta teighögg karla:
11. braut: Nökkvi Snær Jónsson – 10.000 kr inneign í golfbúðinni á Urriðavelli

Næst holu : 10.000 kr inneign í golfbúðinni á Urriðavelli

4. braut: Jón Sigurður Garðarsson – 1,01  
8.  braut:  Anna María Sigurðardóttir – 1,77 
13.braut: Ægir Finnbogason – 45,6 cm 
15.braut: Gunnar Guðjónsson – 67 cm 

 

< Fleiri fréttir