• 1. Object
  • 2. Object

8.9° - NV 5.1 m/s

585 0050

Book Tee Times

Úrslit úr fyrsta móti í Powerademótaröðinni

Það var langur og vindasamur dagur sem tók á móti kylfingum í fyrsta mótinu í Powerade-mótaröðinni síðastliðinn þriðjudag og nú hefur mótanefnd farið yfir stöðuna og sent frá sér úrslit. Notast er við stigakerfi og hlýtur liðið í fyrsta sæti 1500 stig, annað sætið gefur 1200 stig og þriðja sætið 1065 stig og svo lækkar stigagjöfin alveg niður í síðasta sæti mótsins. Þetta fyrirkomulag var tekið upp á síðasta ári og virkaði vel og því geta orðið sviptingar alveg fram á síðustu stundu í mótinu.

Lið Fyrirsætanna sigraði fyrsta mótið með glæsibrag og skiluðu tvær bestu fyrirsæturnar 70 punktum á þessum degi eða fjórum fleiri punktum en lið Greenara og DD-Lakkalakk sem enduðu í öðru og þriðja sæti.

Næsta umferð var fyrirhuguð 13. júní en mótanefnd ákvað að færa það til 14. júní því það rekst á vinkvennamót GO og GKG á heimavelli GKG kvenna. 

Staðan eftir fyrstu umferð

Nándarverðlaun í fyrsta móti fengu Valgerður Torfadóttir á 4. braut, Berglind Rut Hilmarsdóttir á 8. braut, Ágústa Arna Grétarsdóttir á 13. braut og Gunnhildur Hauksdóttir á 15. braut. 

 

< Fleiri fréttir