• 1. Object
  • 2. Object

1° - SSV 1 m/s

585 0050

Book Tee Times

Úrslit úr golfhermamóti nr. 2

Það var flott mæting á annað innanfélagsmót GO í golfherma golfi sem haldið var í frábærri aðstöðu Golfhallarinnar á Granda. Við vorum með tvískipta ræsingu klukkan 10 og 13 og alls kepptu um 50 manns í mótinu.

Við vorum í smá vandræðum með að renna í gegnum úrslitin þar sem láðist í mörgum tilvikum að breyta forgjöf leikmanna sem léku ýmist á sinni grunnforgjöf eða trackmanforgjöf en reglan var eins og í fyrsta mótinu að spila á 2/3 af sinni eigin forgjöf og listi gekk um salinn þar sem búið var að finna út forgjöf leikmanna á eins máta fyrir alla. Hámarksforgjöf í mótinu hjá körlum var 24 og konum 28 og við þurftum að breyta við yfirferð hjá nokkrum. Mótið er í grunninn meira til gamans þó vissulega sé keppni í gangi.

Mótstjóri lauk laugardagskvöldinu í veitingasölu á okkar einu sönnu Eurovision keppni, var það fjórða kvöldið sem mótstjórinn hefur þurft að hlusta á Eurovision í ár sem er meira en leggja má á flesta. Við segjum ekki að leynd liggji yfir þeirri aðferð sem notuð var við útreikning á úrslitum úr golfmótinu en þetta litast kannski aðeins af þeim óvæntu úrslitum sem mótstjórinn upplifði í Eurovision-höllinni og eru úrslitin því endanleg og kærufrestur er liðinn.

Karlaflokkur

  1. sæti – Egill Ingólfsson 48 punktar
    4000 kr gjafabréf á Fresco, tveir bíómiðar í Laugarásbíó, 3pack af GO merktum Titleist boltum
  2. sæti – Guðjón Steinarsson 39 punktar
    4000 kr gjafabréf á Fresco, tveir bíómiðar í Laugarásbíó, 3pack af GO merktum Titleist boltum
  3. sæti – Skúli Ágúst Arnarson 38 punktar
    4000 kr gjafabréf á Fresco, tveir bíómiðar í Laugarásbíó, 3pack af GO merktum Titleist boltum

Kvennaflokkur

  1. sæti – Anna María Sigurðardóttir 40 punktar
    4000 kr gjafabréf á Fresco, tveir bíómiðar í Laugarásbíó, 3pack af GO merktum Titleist boltum
  2. sæti – Björg Þórarinsdóttir 37 punktar
    4000 kr gjafabréf á Fresco, tveir bíómiðar í Laugarásbíó, 3pack af GO merktum Titleist boltum
  3. sæti – DíDí Ásgeirsdóttir 35 punktar
    4000 kr gjafabréf á Fresco, tveir bíómiðar í Laugarásbíó, 3pack af GO merktum Titleist boltum

Eins og sést þá var ákveðið að hafa eins verðlaun í öll sæti að þessu sinni, við þökkum innilega fyrir þátttökuna og hægt verður að vitja vinninga á skrifstofu GO.

Athugið að skrifstofan er lokuð frá 15. mars til 22. mars.

Over and out,

< Fleiri fréttir