• 1. Object
  • 2. Object

5.2° - SSA 9.5 m/s

585 0050

Book Tee Times

Vorfundur Golfklúbbsins Odds

Vorfundur Golfklúbbsins Odds fer fram laugardaginn 21. apríl næstkomandi í klúbbhúsinu á Urriðavelli.

Húsið opnar kl. 9:30 og verður boðið upp á léttan morgunverð  og kaffi.
Fundurinn hefst svo stundvíslega kl. 10:00.

Á fundinum verður farið yfir þau mál sem framundan eru í starfi klúbbsins og fundargestum gefið tækifæri til að koma með spurningar og ábendingar um starf GO. Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna og taka virkan þátt í félagsstarfi klúbbins. 

Meðal þess sem er á dagskrá fundarins er eftirfarandi.

– Vallarframkvæmdir,
– Staða á byggingu vélageymslu 
– Staðan á skipulagsmálum og stækkun vallarins
– Opnun vallar
– Vinavellir GO 2018 
– Hvað er framundan í félagsstarfi
– Önnur mál

Kveðja, 
Stjórn GO

< Fleiri fréttir