02/05/2022

Sumaræfingar barna og unglinga í GO hefjast þriðjudaginn 3. maí og æfingatími er klukkan 15:00 og verða þeir tímar fastir í sumar á þriðjudögum. Æfingarnar eru hugsaðar fyrir árganga 2007 – 2013. Allir eru velkomnir á fyrstu tvær æfingarnar í maí óháð félagsaðild en ganga þarf frá greiðslu æfingagjalds í gegnum Sportabler fyrir þá sem ætla að vera með í framhaldinu og gjaldið fyrir sumarið er 10.000 kr.
Til að ganga frá félagsaðild barna í sumar er hægt að hafa samband við skrifstofu GO og við skráum barnið í aðild. Í boði eru tvær félagsaðildir að GO, full aðild og Ljúflingsaðild eins og hægt er að skoða hér fyrir neðan.
Allar frekari upplýsingar um æfingar og aðild er hægt að fá á skrifstofu GO í síma 5850050 eða á netfangið skrifstofa@oddur.is
Fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref og eru yngri en 10 ára bendum við á að við verðum með golfleikjanámskeið í sumar og allar upplýsingar um þau má finna hér GOLFLEIKJANÁMSKEIÐ
Urriðavöllur Full aðild
| Börn og unglingar 17 ára og yngri* | 42.000 |
| *ótakmarkað spil á báðum völlum GO | ——— |
| Systkinaafsláttur, 17 ára og yngri: | |
| – Tvö systkini | 54.000 |
| – Þrjú systkini | 66.000 |
| – Fjögur systkini | 78.000 |
Ljúflingsaðild
| Ljúflingur félagsaðild barna 6 – 17 | 18.000 |
| *Ljúflingsaðild felur einungis í sér heimild til að spila á Ljúflingi. |