0.7° - ASA 2 m/s

585 0050

Book Tee Times

Golfleikjanámskeið GO – Sumar 2026

Golfleikjanámskeið GO – Sumar 2026

Skráning fer fram í gegnum Abler – Skráning opnar í apríl

Um golfleikjanámskeiðið

Námskeiðið er fyrir nemendur á aldrinum 7 til 12 ára. Námskeiðin eru á virkum dögum og eru frá 9 til 12 á daginn. Í lok námskeið spila allir Ljúfling og endum á grillveislu.

Dagsetningar fyrir námskeiðin í sumar eru eftirfarandi:

  1. námskeið: 15.-19.júní (4 dagar) 
  2. námskeið: 29.júní-3.júlí (5 dagar)
  3. námskeið: 13-17.júlí (5 dagar)
  4. námskeið: 4.-7.ágúst (4 dagar)
  5. námskeið: 10.-14.ágúst (5 dagar)

Athugið að námskeiðstími er frá 9:00 – 12:00.
Námskeiðin eru ætluð börnum frá 6 – 12 ára (fædd 2013 – 2019).

Verð

Verð fyrir 5 daga námskeið er **** kr.
Verð fyrir 4 daga námskeið er **** kr.

Allir þátttakendur fá Ljúflingsaðild að loknu námskeiði. Þá geta iðkendur komið og spilað ljúfling eins oft og þau vilja yfir sumarið.

 

Markmið golfleikjanámskeiðanna hjá GO

Að kynna golfíþróttina fyrir börnunum og ýta undir áhuga þeirra á því að leggja stund á þessa fjölskylduvænu íþrótt. Farið er í helstu þætti golfleiksins, allt frá púttum til upphafshögga og eru leiðbeiningar gjarnan í formi ýmiss konar golfleikja. Einnig verður lögð áhersla á að kynna helstu golfsiði og golfreglur fyrir nemendum. Mikilvægt er að á golfnámskeiðinu séu einnig fjölbreyttir leikir sem efla hreyfiþroska barnanna svo sem samhæfingu, liðleika og jafnvægi, enda eru það mikilvægir þættir í hreyfingum golfsveiflunnar. Forgangsatriði námskeiðanna eru að þau séu örugg, skemmtileg, og að börnin njóti sín og þrói jákvætt viðhorf til golfíþróttarinnar.

Öll börn sem skráð eru á námskeið hjá Oddi fá félagsaðild að Golfklúbbnum Oddi svokallaða ljúflingsaðild og geta haldið áfram að spila allt sumarið á okkar frábæra æfingavelli Ljúflingi.

 

Kennarar og leiðbeinendur:

Golfkennarar á námskeiðinu eru:

Hrafnhildur Guðjónsdóttir PGA golfkennari

Auður Björt Skúladóttir PGA golfkennari

Íris Lorange Káradóttir PGA golfkennari

Arnór Snær Guðmundsson PGA golfkennari

Ásamt þeim verða leiðbeinendur úr starfinu til aðstoðar.

 

Skráning fer fram í gegnum Sportabler – Skráningarhlekkur kemur seinna

 

Æfingar

Barna og unglingastarfs golfklúbbsins Odds er í mikilli uppbyggingu. Boðið er upp á æfingar fyrir 8 til 18 ára allt árið.

Frekar um starfið má sjá hér: Æfingastarf GO