03/03/2017
Á sumrin hefur Golfklúbburinn Oddur í samstarfi við PGA kennara golfklúbbsins staðið fyrir vel sóttum barnanámskeiðum fyrir okkar yngstu kylfinga. Námskeiðin hafa þótt heppnast afskaplega vel og fjölgun hefur verið ár frá ári á námskeiðunum.
Nánari upplýsingar um verð á námskeiðin og skráningu fyrir 2018 verða settar hér inn á síðuna þegar það liggur fyrir.
Við hvetjum félagsmenn sérstaklega til þess að koma með börn sín, barnabörn og vini þeirra á námskeið hjá okkur og lofum því að þau eru í góðum höndum þar sem menntaðir PGA kennarar sjá alltaf um kennsluna ásamt góðum aðstoðarmönnum. Verð á námskeiðin hefur verið stillt í hóf undanfarin ár, félagsmenn sem skrá sín börn eða barnabörn á námskeiðin fá 20 % afslátt, veittur er systkynaafsláttur og afsláttur ef börnin sækja fleiri en eitt námskeið.
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir af námskeiðunum.
Myndasafn frá námskeiðum 2017, má sjá hér
Myndasafn frá námskeiði 2015 má sjá hér.