13.5° - NA 4 m/s

585 0050

Book Tee Times

Meistaramót GO 2026 – Skráning

Nú er að komið að skráningu í meistaramót GO 2026 en hún mun opna þriðjudaginn 23. júní klukkan 10:00. 
Mótið hefst laugardaginn 4. júlí og lýkur 11. júlí með glæsilegu lokahófi sem er skv. venju innifalið í mótsgjaldi og við spennt að sjá hvað hOla Mathús töfrar fram á veisluborðið og einhver verður gleðin.

SKRÁNING HÉR   í fullorðinsflokka á Urriðavelli

SKRÁNING HÉR   í barna og unglingaflokka á Urriðavelli

SKRÁNING HÉR   í barna og unglingaflokka á Ljúflingi 

Flokkaskipting og leikdagar í mótinu í ár eru á sömu nótum og 2025 svo lítið ætti að koma á óvart. Hægt er að kynna sér áætlað skipulag rástíma hér fyrir neðan og reglugerð meistaramóts. Helsta breyting í reglugerð snýr að því að heimilt er að láta inn niðurskurð á lokadegi allra leikhópa og miðast það við 15 efstu leikmenn í stað 21 á síðasta ári. Í grunninn er þetta aðallega hugsað til að létta á lokadegi mótsins en verður einnig skoðað á aðra flokka ef þarf til að létta á öðrum leikdögum vegna mikillar þátttöku. 

Reglugerð meistaramóts 2026 Áætlun skipulag rástíma 2026 - með smá breytingum

 

< Fleiri fréttir