• 1. Object
  • 2. Object

10.1° - NV 1 m/s

585 0050

Book Tee Times

Powerade mótaröðin 2017

Powerade mótaröðin 2017 er að hefjast og skráning í fullum gangi og hægt að staðfesta þátttöku með því að senda póst um liðsskipan og aðrar upplýsingar á afgreidsla@oddur.is. Nú leitum við að Grand, Gárungum, Hi-five, Double D, Pinnum, Albatros, Grænju sveðjunum, 6 fuglum, Sérsveitinni, Prinsunum, The holy one’s, Landsliðinu, Fórnalambafélaginu og öllum hinum stórkostlegu liðunum sem hafa tekið þátt í hinni vinsælu innanfélagskeppni undanfarin ár.  

Mótin verða fimm talsins í sumar, þrjú af þeim punktamót og svo Texas Scramble og Betri Bolti þannig að það ætti að vera fjör og sviptingar á milli móta eins og á síðasta ári og gaman að rifja það upp að liðið sem var í 11. sæti eftir 3. umferð í fyrra stóð uppi sem sigurvegari þannig að það er aldrei öll nótt úti..

Fyrsta mót er þriðjudaginn 23. maí og allar upplýsingar um mótið er hægt að finna í mótaskrá á golf.is. Hægt er að lesa um mótið á oddur.is með því að smella hér

 

 

< Fleiri fréttir