• 1. Object
  • 2. Object

10.4° - N 3.6 m/s

585 0050

Book Tee Times

Golfleikjanámskeið GO – Sumar 2024

***Skráning hafin***

Dagsetningar fyrir námskeiðin í sumar eru eftirfarandi:

  1. námskeið: 10. – 14. júní (5 dagar) 
  2. námskeið: 18. – 21. júní (4 dagar)
  3. námskeið: 1. júlí. – 5. júlí (5 dagar)
  4. námskeið: 6. – 9. ágúst (4 dagar) 
  5. námskeið: 12. – 16. ágúst (5 dagar)

Athugið að námskeiðstími er frá 9:00 – 12:00.
Námskeiðin eru ætluð börnum frá 6 – 12 ára (fædd 2011 – 2017).

Verð fyrir 5 daga námskeið er 17.000 kr.
Verð fyrir 4 daga námskeið er 13.600 kr.

Skráning fer fram í gegnum Sideline Sports (XPS) – SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SKRÁ 

Athugið að til að skrá barn á golfleikjanámskeið er hægt að ganga frá skráningu í gegnum hlekkinn hér fyrir ofan. Velja þarf Golfklúbbinn Odd, þar er svo óskað eftir skráningu inn í kerfið með rafrænum skilríkjum. Í kjölfarið opnast valmynd þar sem viðkomandi forráðamaður getur valið sitt barn sem iðkanda og þá birtist það úrval golfleikjanámskeiða sem er í boði. Kerfið ætti svo að leiða ykkur áfram í greiðslu á námskeiðsgjaldi.

ATHUGIÐ- aðeins forráðamenn geta skráð barn beint í gegnum kerfið en hægt er að hafa samband við Hrafnhildi á netfangið hrafnhildur@oddur.is eða skrifstofa@oddur.is og við skráum þann aðila sem greiða skal námskeiðið sem forráðamann í kerfinu svo hægt sé að klára skráningu.

Einnig er hægt að ná sér í app sem kallast “XPS Network”, þegar það er klárt er hægt að bóka á námskeið með því skrá inn með rafrænum skilríkjum. Ef ykkur vantar aðstoð við skráningu þá endilega hafið samband við skrifstofu GO.

Öll börn sem skráð eru á námskeið hjá Oddi fá félagsaðild að Golfklúbbnum Oddi svokallaða ljúflingsaðild og geta haldið áfram að spila allt sumarið á okkar frábæra æfingavelli Ljúflingi.

Hjá GO verður í boði að skrá börn á sumaræfingar í kjölfar golfnámskeiða og eru þær æfingar hugsaðar fyrir aldurshópana 7 ára (2017)-8 ára (2016) og einnig 9 ára (2015) – 11 ára (2012). Í boði er að skrá börn í aðild og æfingar strax frá opnun golfvallar og ættu þeir valmöguleikar að birtast þegar þið skráið ykkur inn í XPS íþrótta og greiðslukerfið.

Hægt er að lesa meira um æfingarnar hér: https://www.oddur.is/aefingastarf/sumaraefingar-

Kennarar og leiðbeinendur:

Golfkennsla á námskeiðinum er í höndum PGA barna- og byrjendakennaranna Hrafnhildar Guðjónsdóttur, Auðar Bjartar Skúladóttur og Írisar Lorange Káradóttur. Ásamt þeim starfa

Svona skráir þú þig…

Skráning fer fram í gegnum Sideline Sports (XPS) – SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SKRÁ 

Smellið á Golfklúbbinn Odd og þaðan farið þið í valmynd til að skrá ykkur inn með rafrænum skilríkjum.

Smellið á réttan iðkenda með því að smella á skammstöfun viðkomandi og þá ættu valmöguleikar viðkomandi að opnast.