10/11/2025

AÐALFUNDUR GO 2025
Kæru félagar, nú styttist í aðalfund Golfklúbbsins Odds sem áætlað er að haldinn verði í golfskálanum í Urriðavatnsdölum laugardaginn 6. desember kl. 11:00.
Kjörnefnd GO auglýsir eftir framboðum í stjórn skv. lögum Golfklúbbsins.
Samkvæmt 10. grein laga GO skulu tilkynningar um framboð til embætta berast skrifstofu Golfklúbbsins Odds, eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund.
Á aðalfundi 2025 verður kosið til eftirfarandi embætta
– formanns til eins árs
– tveggja stjórnarmanna til tveggja ára
– tveggja varamanna til eins árs.
Aðalstjórn
Kári H. Sölmundarson, gefur áfram kost á sér til formanns stjórnar
Jón S. Garðarsson og Páll Þórir Pálsson, eru að ljúka 2ja ára stjórnarsetu og gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarstarfa.
Berglind Rut Hilmarsdóttir og Giovanna Steinvör Cuda voru kosnar til 2ja ára stjórnarsetu á aðalfundi 2024 og eru því ekki í kjöri að þessu sinni.
Varastjórn
Guðrún Símonardóttir gefur áfram kost á sér til varamanns í stjórn til eins árs
Ágúst Valgeirsson gefur áfram kost á sér til varamanns í stjórn til eins árs
Kjörnefnd GO,
Gunnar Viðar
Kristjana S. Þorsteinsdóttir
Hilmar Vilhjálmsson
Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:
Stjórn Golfklúbbsins Odds