• 1. Object
  • 2. Object

2.7° - A 4.7 m/s

585 0050

Book Tee Times

Keppnisreglur og skilmálar

 

1: Þátttökurétt hafa meðlimir GO sem eru með gilda forgjöf.
2: Leiknar eru 6 umferðir (mót) og telja fjögur bestu mót til stiga. (áður þrjú)
3: Fjöldi leikmanna í hverju liði mega vera hámarki 6, það mega allir spila í hverju móti og telja tvö bestu skor liðsins í punktakeppni og besta lið telur í (Texas-greensome-betri bolta mótunum) en í lokamóti sumarsins þar sem leikið er nýtt afbrigði í mótinu gætu mögulega tvö lið talið til stiga. (verður kynnt síðar)
4. Ekki mega vera fleiri en tveir kylfingar sama liðs í sama ráshóp.
5: Ef lið eru jöfn í móti (skor tveggja bestu leikmanna/liða) þá telur þriðji leikmaðurinn/þriðja lið, síðan fjórði svo fimmti og síðan sjötti leikmaður í punktakeppni og í parakeppni (Texas/Greensome/betribolti) skal lið tvö telja næst og svo lið þrjú ef skera þarf úr um sigurvegara. Í lokamóti myndi þá þriðja lið telja til að skera úr um úrslit ef með þarf. Ef ekki er hægt að fá úrslit með þessum aðferðum er varpað hlutkesti. 
6: Ef lið eru jöfn að stigum í lok mótaraðarinnar skal fjórða mótið telja, svo fimmta mót og síðan sjötta mótef með þarf. Svo hlutkesti.
7. Hámarksleikforgjöf er sem hér segir: Karlar: 28 og Konur 32
8. Veitt eru verðlaun fyrir 10 efstu sætin í liðakeppninni.
9. Veitt eru verðlaun fyrir næst holu í öllum mótunum á par 3 brautum vallarins.
Lengsta teighögg karla og lengsta teighögg kvenna í öllum mótunum.
Ef fleiri en einn kylfingur er með mælingu jafnlanga þá úrskurðast samkvæmt reglum um mótahald GO. Ýmis aukaverðlaun verða svo veitt eins og safnast saman í sarpinn í sumar.
10: Ef ágreiningur kemur upp þá skal senda skriflega öll erindi á netfangið afgreidsla@oddur.is

Heimilt er að gera breytingar á keppnisliðum með eftirfarandi hætti:
1. Skipta má út eða bæta liðsmönnum við lið fram í fjórðu umferð mótsins. Leikmenn liðs sem eru skráðir þegar fjórða umferð er leikin eru endanlegir leikmenn liðsins í síðustu umferðunum. 
Leikmaður getur ekki leikið með fleiri en einu liði.
Leikmanni sem skipt er út getur ekki komið aftur inn í liðið. 

Mót nr.1: Miðvikudagurinn 25. maí. (punktakeppni)
​Rástímar frá 11:00 – 12:00 og 15:00 – 18:00*
Skráning opnar 18. maí kl. 13:00

Mót nr.2: þriðjudagur 7. júní. (betri bolti)
Rástímar frá 11:00 – 12:00 og 15:00 – 18:00*
 Skráning opnar 31. maí kl. 13:00
 
Mótið nr. 3: þriðjudagurinn 21. júní. (greensome)
Rástímar frá 11:00 – 12:00 og 15:00 – 18:00*
Skráning opnar 14. júní kl. 13:00
 
Mót nr.4: þriðjudagurinn 19. júlí. (punktakeppni)
Rástímar frá 11:00 – 12:00 og 15:00 – 18:00*
Skráning opnar 12. júlí kl. 13:00
 
Mótið nr.5: þriðjudagurinn 16. ágúst. (Texas)
Rástímar frá 11:00 – 12:00 og 15:00 – 18:00*
 Skráning opnar 9. ágúst kl. 13:00

Mót nr.6: Laugardagurinn 3.sept. (lokahóf um kvöldið)
Rástímar frá 8:00  
Skráning opnar 27. ágúst kl. 13:00

*rástímar eru til viðmiðunar og geta hliðrast til í samræmi við skráningu í mótin og aðra dagskrá á vellinum.

Mótsstjórn skipa:
Laufey Sigurðardóttir formaður mótanefndar, 
Óskar Ingi Bjarnason,
Skúli Ágúst Arnarsson,
Svavar Geir Svavarsson

Tökum þátt og eigum skemmtilegt sumar saman.