• 1. Object
  • 2. Object

4.1° - SSV 6.8 m/s

585 0050

Book Tee Times

Opnunarmót úrslit

Þvílík byrjun á golfsumri hér á Urriðavelli, 20 ° og sól og troðfullt opnunarmót er eitthvað sem við höfum ekki upplifað áður og þessir dagar í kringum opnunina alger veisla í veðri og svæðið ljómaði af lífi. 

Í kvennaflokki léku Ellen Hrefna og Unnur Helga best og komu þær báðar inn á sama skori 38 punktum en Ellen hafði betur í skrifstofubráðabana á seinni 9 holum vallarins. Í þriðja sæti varð svo Ágústa Arna Grétarsdóttir sem einnig hafði betur í skrifstofubráðabana um þriðja sæti við Kristínu B, en þær komu báðar í hús á 35 punktum. 

Í karlaflokki léku Andrés Magnússon og okkar eini sanni Þorvaldur Þorsteinsson best allra og komu þeir í hús með 37 punkta, Andrés hafði betur á seinni 9 holum vallarins og tók því 1. sætið. Í þriðja sæti varð svo Elías Raben á 36 punktum og keppnin þar var að sjálfsögðu hörð en alls voru 5 kappar á 36 punktum en Elías hafði það á síðustu holunum í skrifstofubráðabana. 

Sólveig Guðmundsdóttir lék best í höggleik kvennamegin á 84 höggum.

Gunnar Guðjónsson lék best í höggleik í karlaflokki á 79 höggum.

Verðlaun í mótinu eru inneignir í golfbúðinni á Urriðavelli og hægt verður að nýta inneign þar fljótlega eftir helgina. 
Verðlaun í karla og kvennaflokki:

  1. sæti í höggleik og punktakeppni  – 25.000 kr inneign
  2. sæti í punktakeppni – 20.000 kr. inneign
  3. sæti í punktakeppni – 15.000 kr. inneign

Nándarverðlaun – 10.000 kr. inneign
Lengstu teighögg – 10.000 kr. inneign

18 holu punktakeppni með forgjöf þar sem veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í karla og kvennaflokki og fyrir besta skor karla og besta skor kvenna í höggleik.

Nándarmælingar eru á brautum:
4 – 8 – 13 og 15
Lengsta teighögg kvenna á 3 braut
​Lengsta teighögg karla á 11 braut.

 

         
  KVK Flokkur      
1 Ellen Hrefna Haraldsdóttir L9 38
2 Unnur Helga Kristjánsdóttir   38
3 Ágústa Arna Grétarsdóttir L9 35
4 Kristín B Gunnarsdóttir   35
5 Unnur Birna Þórhallsdóttir L9 34
6 Camilla Kristjánsdóttir L9 34
7 Hlíf Hansen   34
         
  KK Flokkur      
1 Andrés Magnússon L9 37
2 Þorvaldur Þorsteinsson   37
3 Elías Raben Unnars. Gunnólfsson L9 36
4 Bergþór Njáll Kárason L9 36
5 Andri Örn Heiðberg Steindórsson L9 36
6 Hjálmar Jónsson L9 36
7 Jón Ágúst Garðarsson   36
8 Úlfur Blandon L9 35
9 Kári Haraldur Sölmundarson L9 35
10 Helgi Björnsson L6 35
11 Sæþór Ólafsson L9 35
12 Heimir Sigurðsson   35
         
  Næst/ur holu á:      
4 Berglind Rut  Hilmarsdóttir 5.05  
8 Andri Örn Heiðberg 1.08  
13 Ingi Þór  Hermannsson 3.45  
15 Guðný Helgadóttir 83.5 cm  
         
  Lengsta teighögg á:      
3 Ágústa Arna Grétarsdóttir    
11 Gunnar  Guðjónsson    
         
< Fleiri fréttir