29/06/2025
Golfklúbburinn Oddur átti fulltrúa, Óskar Bjarna Ingason í LEK landsliðið Íslands sem tók þátt í ESGA landsliðakeppni liða 55 ára og eldri sem fram fór á El Rompido á Spáni í síðustu viku. Óskar Bjarni var einn af sex keppendum í liði Íslands án forgjafar og stóð hann sig vel sem og liðið allt. Leiknir voru þrír hringir þar sem 4 fulltrúar liðsins telja til skors og taldi Óskar alla þrjá keppnisdagana á 81,79 og 82 höggum. Liðið hafnaði í 6. sæti af 21 liði.
Samhliða keppni án forgjafar var einnig keppt í keppni með forgjöf (punktakeppni) þar sem Ísland átti annað landslið sem stóð sig einnig frábærlega þó við ættum ekki fulltrúa þar og hafnaði liðið í öðru sæti jafnir að punktum við liðið í efsta sæti. Greinilegt að kylfingar hér heima eru sterkir á heimsvísu.
Á myndinni hér fyrir ofan frá vinstri talið, Einar Long, Hjalti Pálmason, Tryggvi Valtýr Traustason, Gunnar Páll Þórisson, Halldór Á. Ingólfsson og okkar eini sanni Óskar Bjarni Ingason.