• 1. Object
  • 2. Object

4.1° - SSV 6.8 m/s

585 0050

Book Tee Times

Reglur og fyrirkomulag holukeppni GO

Holukeppni GO 2025

Forskráning er í mótið 2025 þar sem 64/128 keppendur komast inn í fyrstu umferð, dregið verður um hver mætir hverjum. Keppt er í karla og kvennaflokki og sigurvegarar þar mætast svo í úrslitaleik um heiðurinn holukeppnismeistari GO.  

       Áætlaðir leikdagar í hverri umferð til viðmiðunar

  1. Umferð  06. júní – lok dags 25. júní  (64)
  2. Umferð  26. júní – lok dags 14. júlí. (32)
  3. Umferð  15. júlí – lok dags 26. júlí (16)
  4. Umferð  27. júlí – lok dags 10.ágúst. (8) 
  5. Umferð  11. ágúst – lok dags 22. ágúst. (4)
  6. Úrslit  23. ágúst – 26. ágúst (Áætlun) 
  7.  Úrslitaleikur Holukeppni GO
    ​Sigurvegarar holukeppni kvenna og karla
    27. ágúst – 31. ágúst (Áætlun) 


Dregið verður um rásnúmer og raðað í keppnistré og keppendur fá póst um hver er þeirra mótherji þann 05. júní og 1. umferð hefst þann 06. júní.  Keppendur koma sér saman um leiktíma og skrá rástíma á golfbox. Hægt er að fá aðstoð í afgreiðslu við að fá upplýsingar um símanúmer eða netföng keppenda.  

Reglugerð Holukeppni GO

1.gr
Mótið skal halda árlega og hefjast með forkeppni sem er 18 holu punktakeppni með forgjöf. Forkeppnina má spila sem hluta af öðru móti ef mótanefnd ákveður svo.
Forkeppnina má fella niður ef mótanefnd ákveður svo. Mótanefnd hefur heimild til að fylla upp í keppnistréð ef næg þáttaka næst ekki í forkeppni. 
Hámarks leikforgjöf kvenna skal þó vera 28, bæði í forkeppni og í holukeppni og karla 24, bæði í forkeppni og holukeppni.

Ef engin forkeppni fer fram er opnað fyrir skráningu í holukeppni á golfbox og miðað er við að fyrstu 64 keppendurnir sem skrá sig til leiks fái heimild til þátttöku. Mótanefnd hefur heimild til að leyfa allt að 128 keppendum að taka þátt og miðast það þá við þá sem fyrst skrá sig til leiks. Umferðum verður endurraðað ef fjöldi keppenda er fleiri en 64.  

2.gr
Þeir 64 keppendur sem ná bestum árangri í karla og kvennaflokki í forkeppninni eða skráðir keppendur skv. heimildum mótstjórnar ef um forskráningu er að ræða, taka þátt í holukeppni með forgjöf, þar sem keppt er um titilinn holumeistari karla og holumeistari kvenna. Holumeistari karla og holumeistari kvenna leika svo til úrslita um titilinn: Holumeistari GO.  Verði tveir eða fleiri keppendur í forkeppninni jafnir á sama skori ræðst röð keppenda eins og kveðið er á um í 5. grein Móta- og keppendareglna GSÍ. Ef keppendur eru með jafn marga punkta eftir 18 holur skal seinni 9 holur ráða. Svo 6 síðustu holur og síðan 3 síðustu og síðan síðasta. Ef enn er jafnt skal telja upp frá 17.holu þar til úrslit ráðast. Ef enn er jafnt skal hlutkesti ráða.

3.gr
Aðeins kylfingar með gilda EGA forgjöf hafa keppnisrétt í holukeppninni.

4.gr
Leikmaður ræður af hvaða teig hann leikur og tekur leikforgjöf hans mið af því, þó með þeim takmörkunum að aldur og forgjöf ræður teig skv. reglugerðum. Nota skal grunnforgjöf eins og hún er, þegar leikur fer fram við útreikning leikforgjafar, þó með hámarksleikforgjöf skv. 1.gr. Forgjöf nýtist í samræmi við forgjafarröð vallarins. Sé annar leikmaður t.d. með 10 í forgjöf en hinn 18, fær forgjafarhærri leikmaðurinn forgjöf á hinn leikmanninn á holum 1-8 í forgjafarröð.

5.gr
Í hverri umferð í holukeppninni eru leiknar 18 holur. Leika skal til úrslita í hverjum leik. Verði leikmenn jafnir eftir 18 holu leik skal  áfram leikið og gildir forgjöf leikmanns áfram. Fyrsta unnin hola ræður úrslitum. 

6.gr
Mótanefnd ákveður lokafresti til að ljúka hverri umferð holukeppninnar og tilkynnir það á heimasíðu og á auglýsingatöflu í golfskála. Keppendur í holukeppni koma sér saman um hvenær þeir kjósa að leika hverja umferð fyrir þann lokafrest. Geti keppandi ekki leikið, eða mæti hann ekki til leiks á tilskildum tíma hefur hann tapað leik sínum. Mæti hvorugur keppenda til leiks fyrir lokafrest til að ljúka umferð falla þeir báðir úr keppninni. Ef leikmenn geta ekki komið sér saman um leiktíma, geta þeir leitað til mótstjóra um milligöngu. Mótsstjórn ákveður þá leiktíma sem að óbreyttu ef ekki er auglýstur sérstaklega skal vera klukkan 10:00 á auglýstum lokadegi umferðar. Sé rástími klukkan 10:00 ekki laus skal næsti lausi rástími verða fyrir valinu.

7.gr
Sigurvegari í holukeppninni karla og kvenna ár hvert hlýtur titilinn holumeistari karla og holumeistari kvenna og fylgir titlinum farandgripur og eignargripur. Sigurvegari í holukeppninni ár hvert hlýtur titilinn Holumeistari GO og fylgir titlinum farandgripur. Einnig hlýtur holumeistarinn verðlaunagrip til eignar. Holumeistari ársins er krýndur og fær afhentan farandgripinn í verðlaunaafhendingu lokamóts mótaraðar eða bændaglímu GO.